birgitta-ros.bloggar.is
Fólk, börn og engillinn minn...Birgitta Rós Björgvinsdóttir
Hversu oft hefur maður ekki heyrt af því þegar fólk er að skilja eða hætta saman að það komi verst út á börnunum eða að fólk jafnvel noti börnin sín upp á móti maka sínum með hótunum og öðru eins bulli... þetta finnst mér gersamlega út í hött, þegar börn eiga í hlut á fólk að geta í öllum tilfellum lagt sínar skoðanir, sínar tilfiningar, sitt hatur, og allt sem snýr að sínu til hliðar ef það hagnast barninu... sama hversu mikið fólk hatar maka sinn eða þ.e.a.s. fyrrverandi maka eða líður illa eiga börnin ekki að þurfa að finna fyrir því... þá er bara að setja upp grímu og gera líf barnsins eins þægilegt og hamingjusamt og hugast getur því það eru jú börnin sem skipta öllu máli....Aldrei myndi mér detta til hugar að setja Camillu í annað sætið... eða geta verið frá henni í lengri tíma.. enda er hún yndisleg og mín besta vinkona, það er hún sem knúsar mig á morgnana, það er hún sem tekur utan um mig á hverjum degi og segist elska mig, það er hún sem kemur mér til að hlæja alla daga, það er hún sem bíður mín alltaf jafn spennt eftir vinnu, jú það er hún sem ég lifi fyrir....
En sama hvað maður er búinn að heyra margar sögur af svona sambandsslitum þar sem allt er látið bitna á börnunum þá hélt ég aldrei að ég myndi lenda í slíku.....
Eitt er víst að Camilla mun alltaf vera númer 1-2-3-4 og 5 í mínum huga, hún er engillinn minn;)
Athugasemdir
3
Bryndís frænka skrifar:
hæ skvís, flottur pistill hjá þér, mikið rétt í honum, hvernig hafið þið mæðgur það annars?
Ferðu á ættarmótið í sumar?
Ferðu á ættarmótið í sumar?
15. maí 2007 klukkan 04:45
4
Birgitta skrifar:
Takk fyrir það;)
já að sjálfsögðu.... bara gaman að sjá hverjir eru skyldir manni;) liggur við að maður sé stressaður að hitta e-h sem maður þekkir hehe, þetta er agalegt, ættamót á 20 ára fresti eða e-h.. stórhættulegt alveg.. kemur þú frænka?? ;)

15. maí 2007 klukkan 19:07
5
Bryndís frænka skrifar:
nei ég verð föst í ameríkunni, ég væri samt þvílíkt til í að koma!
15. maí 2007 klukkan 20:51
6
Birgitta skrifar:
þú kíkir þá bara næst eða ca. árið 2027 ;) hahaha, þá verð ég 44 ára, vó;)
15. maí 2007 klukkan 20:53
7
Ási skrifar:
Þetta blogg kom innst frá hjartanu ;) Þú ert að standa þið eins og hetja og þér á eftir að vegna vel í lífinu, camillu þó betur með svona æðislega mömmu =) btw...það er verið að fara að hætta að sýna skaufamyndina...hehe ;)
15. maí 2007 klukkan 21:48
8
Bryndís frænka skrifar:
Gamla gamla!!! hahahha!! þá verð ég rétt skriðin uppúr þrítugt og enn á fertugsaldrinu ef ég slepp þarna um sumarið!! gott að eiga afmæli seint á árinu!
16. maí 2007 klukkan 20:41
9
Þórunn í Árósum skrifar:
En skemmtilegt að þú sért með blogg :) Bæti þér á bloggrúntinn og hlakka til að fylgjast með ykkur.
Það er rétt sem þú segir í þessum pistli, það er ótrúlega oft að börnin eru notuð sem verkfæri í sambandsslitum og veit maður mörg raun-dæmi þess þar sem ósköp venjulegt fólk breytist bara í algjöra bjána við þessar aðstæður.
Vona að allt gangi vel hjá þér frænka :) Hlakka til að hitta þig á ættarmótinu í sumar.
Kveðja, Þórunn

17. maí 2007 klukkan 12:56
10
jóhannes frá kef skrifar:
ég lenti í því að skilja fyrir c.a 2 árum.. þegar helgarpappa dæmið byrjaði fann ég hvað ég var að missa af að vera ekki meira með drengnum mínum, svo ég fékk að fara með hann á hverjum morgni í leikskólann,, það bjargaði alveg deginum,, en svo saknaði ég litla kúts allan daginn meira og meira og langaði að vera með honum allan daginn svo ég samdi við mína fyrverandi um að ég hafi hann 2.3.2 daga þannig ég hef hann 14-16 daga í mánuði sem að er alveg meirihátar við erum bestu vinir og elskum að vera saman,,,
ég skil ekki hvernig sumirpabbar tíma að eiða þessum yndislegu tíma með barninu sínu, í reiði útí móður og láta það bittna á barninu ,, og stundum er það hann sem fór!!í leit af betra grasi og hélt að hann kæmist aftur heim ef ekkert fannst,, hún segir nei ekkert meira bull væni og þá er hann fornalamb og verður reiður úti hana ,,,
þetta eru kjánar sem eru að missa af bestu tímum barnsins.... þeirra missir....
ég veit ég ætla njóta þess að hafa þennan dreng sem ég á alltaf í minni návist.
gangi þér vel vinkona kær

17. maí 2007 klukkan 13:05
11
Dísa skrifar:
Heyr Heyr!!
Talandi um hvað margt væri betra ef maður ætti barnsföður sem hugsaði svona.. Barnið manns í 1.sæti en ekki 20.
Hitt er því miður allt of algengt sem er bara svo sorglegt þar sem það eru börnin sem fara verst útúr þessu að eiga ekki náin samskipti við bæði mömmu sína og pabba... þó svo að það sé stríð á milli þeirra.. barnið á ekki að þurfa að finna fyrir því eða lenda í miðjunni :(
Hef fylgst með þessu máli frá byrjun og Ok er oft mjööög ósátt með framgöngu míns barnsföðurs og hef oft grátið og virkilega þurft að pústa út vegna gullmolans míns en þarna væri ég gjörsamega búin að snappa...
Ég stend svo heils hugar með þér Birgitta mín.. ömurlegt að þurfa að vera að standa í þessu Camillu vegna..og þín líka.. Þetta getur tekið svo rosalega á :/
Síjú á morgun sem bæðövei verður góður dagur :D
lovya Dísa

17. maí 2007 klukkan 20:38
12
Birgitta skrifar:
Takk allir fyrir yndisleg komment... þið eruð best og ég er heppin og óendanlega ánægð með að hafa kynnst ykkur, þið eruð æði;) love ya;);)
22. maí 2007 klukkan 00:18
En mikið er þetta ógeðslega VEL orðað hjá þér... Örugglega ekki hægt að orða þetta betur.. En þið Camilla eigið svooo gott skilið.. og það kemur.. Eruð svo yndislegar og ég er svo ánægð að vera vinkona þín :D
STÓRT KNÚS Þetta vonandi líður hjá .
***