birgitta-ros.bloggar.is
Life works in mysterious ways...Birgitta Rós Björgvinsdóttir
af eigin reynslu og sögum annarra eru áföllin í lífinu og erfiðleikar einungis til þess gerðir að styrkja okkur.. það sem ekki bugar okkur gerir okkur sterkari og þar fram eftir götunum. 'A suma er mikið lagt og svo eru það hinir sem virðast svífa í gegnum lífið... Sjálf trúi ég ekki á guð sem slíkan en er nú samt með það á hreinu að það er fyrirfram ákveðið hvað er lagt á fólk, hvenar það á að kveðja þetta líf og hversu mikið er lagt á það...
Held að allir ættu að fara að skoða það hvernig þeir lifa lífinu.. fá það besta út úr því.. lifa hverja stund til hins ýtrasta..og njóta hverrar stundar með ástvinum því engin veit hvenar lífið endar eða hverju maður getur verið að missa af með því að fresta eða sleppa hlutunum...
Að vera hamingjusamur, ánægður, ákveðinn og sjálfstraustur er góð uppskrift af góðu lífi að mínu mati..að sjálfsögðu koma dagar þar sem maður er frekar þungur og allt er ómögulegt en það er eitthvað sem með hjálp góðra vina og fjölskyldu maður kemst yfir því jú... lífið heldur áfram hvort sem maður er tilbúinn til þess eða ekki..það þarf bara að gefa þessu tíma og leyfa sárunum að gróa...
Minn hugur er hjá Gauja og fjölskyldu hans....
Fólk, börn og engillinn minn...Birgitta Rós Björgvinsdóttir
Hversu oft hefur maður ekki heyrt af því þegar fólk er að skilja eða hætta saman að það komi verst út á börnunum eða að fólk jafnvel noti börnin sín upp á móti maka sínum með hótunum og öðru eins bulli... þetta finnst mér gersamlega út í hött, þegar börn eiga í hlut á fólk að geta í öllum tilfellum lagt sínar skoðanir, sínar tilfiningar, sitt hatur, og allt sem snýr að sínu til hliðar ef það hagnast barninu... sama hversu mikið fólk hatar maka sinn eða þ.e.a.s. fyrrverandi maka eða líður illa eiga börnin ekki að þurfa að finna fyrir því... þá er bara að setja upp grímu og gera líf barnsins eins þægilegt og hamingjusamt og hugast getur því það eru jú börnin sem skipta öllu máli....Aldrei myndi mér detta til hugar að setja Camillu í annað sætið... eða geta verið frá henni í lengri tíma.. enda er hún yndisleg og mín besta vinkona, það er hún sem knúsar mig á morgnana, það er hún sem tekur utan um mig á hverjum degi og segist elska mig, það er hún sem kemur mér til að hlæja alla daga, það er hún sem bíður mín alltaf jafn spennt eftir vinnu, jú það er hún sem ég lifi fyrir....
En sama hvað maður er búinn að heyra margar sögur af svona sambandsslitum þar sem allt er látið bitna á börnunum þá hélt ég aldrei að ég myndi lenda í slíku.....
Eitt er víst að Camilla mun alltaf vera númer 1-2-3-4 og 5 í mínum huga, hún er engillinn minn;)